o's profileÓli MaggPhotosBlogListsMore ![]() | Help |
|
Óli MaggSeptember 25 Endurtekningar eru huggandi og róandiHef verið með hræðslu við að skrifa niður eitthvað hér því ég hef séð á þessum stutta vefdagbókarferli mínum að ég er með eindæmum rútíneraður maður.
Enn á ný er ég glaður vegna veiði, sérstaklega að hann Sigfús vinur minn er kominn aftur í hópinn.
Enn á ný glaður að körfuboltinn minn er byrjaður í Austurbæjarskóla og hefur aldrei verið massívari.
Reyndar er þó aðeins nýtt að barn okkar Evu er skráð í keisaralega innkomu þann 5. október 2007.
Ég er byrjaður í nýrri vinnu sem ég kann mjög vel við. Og ég byrjaði í pilates eins og ég hafði talað um að gera..
Ég keypti mér líka leikjatölvu eftir 7 ára vangaveltur, xbox360 sem ég er soldið skotinn í. Seldi fyrstu byssuna mína..
Kannski er ég ekki alveg copy paste þegar ég skrifa þetta svona niður.
Svo get ég sagt frá því að ég er í átaki að ná að troða í körfuboltanum fyrir 16. desember þegar ég verð þrítugur, í dag kem ég tveim fingrum ofan á hringinn. Verið dugleg að hvetja.
Óli Helgi vinur minn er svo í miklum og fallegum pælingum að láta til skara skríða að versla sér ofsalega kaffivél sem má lesa um á síðunni hans og hefur hann milljón % stuðning frá mér.
Þetta er bara ansi gott, kannski ég geti bara skrifað meira jafnvel .....seinna..
May 11 Heitar lummurSkúbb nr e-ð: Sé að Unnur er mér ofjarl í smellum og tók steininn úr þegar hún ákveður að halda eitt stykki sýningu thank u very much. Ég næ ekki að keppa við það. Svo tók hún tvöfalda öfuga léttsnúna sálfræði á þetta og mærir mig á heimasíðunni svo ég ruglast alveg með það hvort ég eigi að þá að skrifa eða ekki skrifa.
Að öðru, haldið þið ekki að hann Óli Helgi vinur minn ætli ekki að skella sér á fagnaðinn ógurlega! Hann var búinn að ákveða að koma ekki en rís upp eins og Fönixinn og mættir svellkaldur. Mun ég vera hans einkabílstjóri frá KEF til AK og skemmta honum með sögum af Gunnari Eyjólfssyni og hræða hann þess á milli þegar ég gleymi að ég er að keyra þegar ég er að fylgjast með gæsunum.
Hilsen
Óli April 23 Meira skúbbÉg skúbba áfram.
Skúbb 7: Ég og Eva eigum von á öðru.
Skúbb 8: Ég hætti hér á Menntasviði í maí og fer yfir til Capacent.
Að öðru, ég þoli ekki þegar bílar ,sem eru til dæmis að bíða á aðrein, fara yfir gangbrautina og stoppa þar. Þetta gerir hjólafólki (mér) erfitt fyrir að komast yfir götuna. Sumir bílstjórar hafa ekkert skynbragð á þetta. Þetta pirrar mig og tefur.
Ég er annars mjög sæll og glaður að öðru leyti. Bara svo ég fari ekki að gefa af mér ranga mynd...
Bestu kveðjur
Óli April 16 Minna bullÍ morgunútvarpinu í morgun á rás 2 var jógakennari að ræða um himneska hreinsun á tilfinningapokanum. Les: Stólpípa, ristill.
Svo var farið í að dásama hveitgrassafa. Bendi ég ennfremur á þennan link. Ég tel hveitigrassafa vera hið mesta rip off, of hypað bull.
Talandi um bull þá segir enginn eins vel orðið bull og Bessi Bjarnason heitinn sem Mikki Refur í Dýrin í hálsaskógi, hann kemur -h einhvernveginn inn í allt orðið svo það verður enn áhrifameira. Svo hélt hún áfram að ræða um hrá eða heilfæði e-ð. Sagði að um leið og fæða er hituð yfir 40°c þá fari allt heilnæmt að renna úr henni. Það er gott og vel og vita flestir að það er rétt í meginatriðum. En þá sagði Gestur Einar, og fyrir þetta fékk hann mörg prik, : "borðar þú aldrei heitan mat?". Tónninn var snilldarlegur í röddinni hjá honum.
Ég styð heilbrigðar matarvenjur og líferni af fullum hug en stundum er gengið of langt. Mest er ég á móti hveitigrassafanum. Getur verið að búið sé að segja fólki að því geti liðið betur jafnvel þó ekkert ami að því?
Í annan stað er ég að vera búinn að fá nóg af umtali um að hafa börn með að elda. Ég mun eflaust æla ef ég sé fleiri myndir í Gestgjafanum þar sem börnum er stillt upp að elda eða baka og svo hin gullna setning að: "börnin borða frekar ef þau eru sjálf að elda og taka þátt og það er svo skemmtilegt fyrir alla". Ekki misskilja mig, ég hef mjög gaman af börnum og þeirri aukningu sem hefur verið á að samfélagið sé barnvænna. Það er bara líka hægt að ganga of langt í því. Svipað eins og að drekka gras. Og borga fyrir það.
Friður sé með yður.
Óli
April 08 MA stúdentar 1997 Sameinist!Rétt í þessu var ég að skoða heimasíðu útskriftarárgangs MA 1997 en gang til. Sé á lista yfir heimasíður þeirra sem skrifa á vefinn og þar við eru skráðir smellir. Sé mér ekki annað fært en að skrifa núna reglulega hérna inn og skúbba villt og galið til að tapa ekki í smellu keppni.
Skúbb 1 : Rebekka er ólétt, tvíburar.
Skúbb 2 : Gunnhildur er líka ólétt og er með skóblæti.
Skúbb 3 : Á gömlum skólamyndum hefur fólk haldið að ég væri Tommi. Einu sinni hélt ég það líka.
Skúbb 4 : Maggi og Þurí eiga barn, fyrirtæki og Magnús er í viðskiptaferð í Japan.
Ég verð samt að segja rosalega hlakka ég til að hitta alla. Þetta eru bara tveir mánuðir í þetta.
Skúbb 5 : Ég og Nína erum að verða kollegar í Capacent.
Skúbb 6 : ...ég verð að passa mig að klára ekki skúbbin.
Fylgist stíft með og allir velkomnir að segja álit á þessu. Það gæti verið smá bras held ég því viðkomandi gæti þurft að vera e-ð tengdur Microsoft til að kvtta.
Lifið heil og sæl. February 28 Tíu þúsund
Tíu þúsund armbeygjur á einu ári. Ég er mjög stoltur af þessu átaki sem ég fór í fyrir einu ári síðan og byrjaði að hafa talningu á skilaboðakerfi MSN. Á þessum tíma hafa um 10-15 manns hérna í vinnunni verið með um styttri og lengri tíma. Ég hef gert þessar armbeygjur nær algjörlega hérna á gólfinu í vinnunni og er svona um eina mínutu að gera þær, oftast 30 stykki í einu en spönnin hefur verið frá 20 til 50 armbeygjur í einu. Oftast um það bil 60 armbeygjur á dag og hef gætt að því að hafa þetta á þann hátt að svitna aldrei en fara sem flestar í hvert sinn. Þetta er þrælfínt og sparar manni ferð í líkamsrækt og tekur enga stund að gera. Ég hef bara fengið velvild frá vinnuveitendum með þetta dæmi.
Ég þakka vinum innilega fyrir sem hafa hvatt mig áfram á meðan þessu stóð.
Lifið heil November 16 Kaffifærsla... en óvænt.Eva kom með góðan punkt um daginn þegar við vorum að ræða kaffihús, starfsmennina þar og hvernig kaffi þeir framreiða. Kaffibarþjónn á að vera verndað starfsheiti, aðrir geta heitið kaffitæknar eða álíka hallærislegt, allt sem er -aðili eða -fulltrúi hentar líka því það er ólært og óhæft. Það er nefnilega tóm vitleysa, bull og kjaftæði að rukka sama verð fyrir Lavazza grút gerðan af leikmanni (hvað þá að kalla það Latte/Cappuchino) og að fá vökva lífsins, gerðan úr bestu baunum og af ást kaffibarþjónsins sem styðst við þjálfun sína og þekkingu.
Ég veit að margir vina minna sem hafa drukkið margan lútinn um ævina eru mér sammála, minnist ég sérstaklega Óla Helga vinar míns sem drakk "kaffi" sem hafði farið 2x gegnum filterinn og tægjur úr filternum dönsuðu í léttgráum vökvanum sem selt var sem kaffi.
Drekkið kaffi, lifið heil. FerðafærslaÉg hjóla enn með Kormák í leikskólann og fer enn í vinnuna á hjólinu. En fór ég með hann í dag? Fokk Nei. Ég er með áráttur og öfgahátt en er ekki vitstola. Þvílíkur kuldi og vil ég benda fólki á http://www.icetourist.is/displayer.asp?cat_id=337 til að reikna út kuldan sér til ánægju og gleði. Því fór Eva Björk með soninn á leikskólann á dömubílnum sínum sem hún hefur komist höndum yfir og fékk ég náðarsamlegast far langleiðina í vinnuna, blessi hana.
Önnur ferðaathugasemd, ég tek strætó stundum og hef lært á hvaða vagnar stöðva hvar. Einn daginn stóð ég og beið eftir sexunni sem var næst og þá brunar fimman að mér og stoppar en það átti hún ekki að gera þar samkvæmt skipulagi Strætó bs. Vitandi að hún fer á minn áfangastað gríp ég tækifærið og fer upp í vagninn þar sem hann var kominn en spyr vagnstjórann:" Á fimman að stoppa hér?" "Þetta er stoppustöð er það ekki!"
Ég er að segja ykkur það, sumir hverjir eru bara á rúntinum og ég verð að segja að það er frábært kerfi.
October 03 Kormákur þriggja áraKormákur Ólafsson er þriggja ára í dag, ég vil óska honum innilega til hamingju með daginn. Hann mun baka súkkulaðiköku á leikskólanum og færa félögum sínum þar. Það er nýr siður þar. Enn fremur verður honum aðeins hampað þar í dag í leik og söng. Svo munum við foreldrar gera honum glaðan dag í dag og svo um helgina verður veisla.
Húrra fyrir Kormáki! August 25 VeiðistrákurUm daginn fór ég á gæsaveiðar við bakka Eyjafjarðarár og veiddi ég við annan mann 7 gæsir. Þrjár þessara gæs tók ég með mér heim og hengdi á svalirnar hjá mér eins og venjulega. Í þetta sinnið velti ég fyrir mér hvernig Kormákur myndi taka þessu en síðasta haust fannst honum þetta ekkert tilkomumál, bara spennandi. í morgun tók hann fyrst eftir þeim og spurði hvort hann mætti fara út á svalir, ég sagði nei því við værum að fara í leikskólann. Sagði honum svo að ég hefði verið að veiða þær. Þá sagði hann "Má ég?" og meðan brjóst föðurins svall af gleði þá sagði ég já að sjálfsögðu eftir nokkur ár. Þá mælti hann " verðum að kaupa veiðistöng".
Með kveðju May 12 Í höfnum var hann hrókur mikils fagnaðar..Ég og fjölskyldan mín förum ekki út til náms haustið 2006. Umsóknasvör hafa ekki enn borist en svör frá Evu hafa gert það. Elsku Eva mín hefur ákveðið að skipta um starfssvið og snúa sér til áhugamála sinna og fara í guðfræði í haust. Ég dáist í raun að þessu að þora að gera þetta. Leggja það sem áður hefur verið gert til hliðar og kasta sér í þetta 5 ára nám. Við verðum því áfram í Hlíðunum og ég áfram á Menntasviði þar til annað kemur í ljós. Stöndum áfram vörð um Íslandsstrendur meðan aðrir taka út útlegð hinu megin við höfin, svo skiptum við.
Fyrir mér liggur nú strangar æfingar í störfum prestsfrúarinnar, bakstur, hagsýn innkaup og straujaðar svuntur . Prestfrúin Ólafur Magnússon stefnir á að sigra í kóramótinu 2011 í Svarfaðardal og fá Púrtvínsbikarinn til eignar. Það yrði nú grín ársins að Eva, séra Eva, væri ógift veiðióðum trúleysingja sem er gefinn fyrir sopann og kann ekki að syngja...nema lagið Brennið Þið vitar. Það gerir hann ægivel, spyrjist bara fyrir.
Þetta verður því svolítið skrýtið hjá okkur Evu þó við séum ekki að fara út, nær allir vinir okkar farnir út til náms og vinnu og Eva að byrja í námi. Nú þarf ég bara að gera e-ð nýtt þá erum við svo gott sem búin að skipta um umhverfi.....ég byrja bara í pilates.
Hver vill kaupa með mér trillu?
adju
Óli March 15 SímskeytiGóðan dag.
Nú nálgast vorjafndægur (20. mars) og gleði skal ríkja í öllum höllum. Ég tilkynni hér með að ég tek enn við upplýsingum um hádegismat vina minn, kunningja og lesenda almennt og þakka þeim Óla og Bergþóru að skrá sitt data.
Woody Allen er pervert, ég vildi bara koma því að.
Eva og ég erum búin að senda umsónkir um framhaldsnám í sálfræði til Köben og Árósa og nú er krossa fingur að einhver vilji taka við okkur, enn er eftir að senda á Stokkhólm sem er okkar fyrsta val.
Liðið er veiðitímabil að mestu og þorrblót veiðiklúbbsins átti sér ekki stað. Var minnst á hví við kæmum ekki og er það huggandi og ljúft að vita að árleg pílagrímsferð okkar sé vel séð. Nema kannski hjá áhangendum formúlunnar..þar er Sigfús enn á dauðalistanum og er leitað að honum í öllum bílum sem koma í sýsluna.
Lifið heil.
January 18 ÖfgafulltDagný RR talaði um í dag um stjórnleysi í mat og óákveðni í hvað skal snæða, er sammála. Ég er til dæmis mjög öfgafullur, eflaust nálægt 7,9823 á skalanum 0-10. Til dæmis fékk fékk viðbjóð á sjálfum mér eftir hádegismatinn í gær þar sem ég borðaði það sem ég ætlaði ekki að borða og var alltof saddur og auk þess fúll. Aðrar stundir hef ég ákveðið að éta svona og þá líður mér vel, ekkert miðgildi. Stundum ét ég hluti sem mér finnast góðir í ofsafengnu magni til þess að fá ógeð á þeim. Sem er snilld. Alveg 100% viss um að DaVinci gerði það líka. Hef eins og langflestir ýmsar skemmtilegar kenjar, borða ekki rúsínur eða aðra þurrkaða hægðarlosandiávexti því þeir líkjast of gömlu fólki. Þó borða ég þurrkuð epli en það er aðallega til að skemmta vinum mínum.
Þessar vikurnar er ég einmitt með svona áskorun í gangi að snæða í mötuneytinu þar sem ég fæ sama mat og þeir sem vinna vinnu sem eyðir hitaeiningum eins og mennirnir í sorphirðunni, byggingum og viðhaldi og fleiri. Því er stundum feitur matur, með feitri sósu og boðið upp á feiti með. Það á ekki sérlega vel við þegar mesta hreyfingin er að labba á klósettið.
Lesendur eru hvattir til að skrá algengasta hádegismatinn sinn. Vegna þess að ég elska data...
January 12 Þetta helst:
December 23 ÞorláksmessaHeyrði í útvarpinu í morgun að þessi Þorlákur væri verndardýrlingur
Íslands að kaþólskum sið og hefði byrjað um árið 1193 að vera gegna því
hlutverki. Löng vakt það. Bærinn svaf allur í morgun, það mátti skynja af þeirri ró og þögn sem sem var þegar við Kormákur stigum úr sjálfrennireið hvítri í morgun og gengum rösklega, þó varlega, til útidyra leikskóla hans. Hittum við ekki einu sinni fyrir kött né fugl svo mikil var kyrrðin. Þar sem dagurinn í dag er föstudagur var morgunkaffi í vinnunni minni sem er siður hér. Tilkynni ég að þessi dagur byrjaði á einum Gammeldansk áður en nokkuð annað rann ofan í belginn á mér. Gammeldansk. Ég er einn harðasti andstæðingur Gammeldansk á Hlíðasvæðinu öllu og í nærliggjandi götum en ég tók þessum sjúss fagnandi og kættist allur við hve þetta kom mér allt á óvart. Þeir sem mig þekkja halda líklega að nú sé ég allur þar sem vörur og áhrif frá Baununum hafa ekki verið mér að skapi. Ég hef haft ákaflega gaman að áróðri mínum og sögulegum kenningum um samband Danmerkur og Íslands, líklega meira gaman en þeir sem ég hef reynt að sannfæra um illan ásetning þeirra Dana. Skemmtilegustu rökin, að mér fannst, var að sandkakan væri komin frá þeirri tíð er Danirnir seldu okkur ónýtt hveiti og blönduðu það sandi til að svindla á okkur sauðheimskum og ljótum íslendingunum. Við hefðum svo farið heim, hölt af skyrbjúg og líklega full, eftir að hafa borgað okurverð og bakað köku úr "hveiti" þessu og skýrt þetta sandköku vegna bragðs og áferðar. Þegar vel lá á mér og mér fannst ég extra fyndinn, það var/er yfirleitt nóg fyrir mig að ég skemmti mér, þó snaraði ég upp kenningunni um að Akureyringar væru "húsnegrar". Sjónvarpið skýrði það einu sinni fyrir mér að húsnegrarnir væru þeir sem væru svo undirgefnir hvítu herrum sínum á síðustu öld í Norður Ameríku að þeir vildu ekkert gera til að styggja þá og töldu þá jafnvel vera sér góða. Þetta yfirfærði ég á Akureyringa vegna þess að fínt þótti að tala dönsku um helgar þrátt fyrir verslunarhætti þeirra Dana. Ég hef meira að segja haft mikið móti því að fara og læra í Danmörku vegna þessa og bara til að vera Emma Öfugsnúna. Þessi viðhorf/kímni hefur breyst. Hef ég kynnst fólki sem ég tel nú góða vini mína sem eru dönsk eða hafa lært eða búið í Danmörku. Ég drakk danskan hyldeblomstersafa um daginn og líkaði vel og enn betur þegar ég henti endurvinnalegri flöskunni sem hafði geymt lífrænan safann ofan í ruslatunnu sem geymdi bara risastór ljót plastílát sem höfðu verið barmafull af sykruðu Coca Cola. Fannst mér það ekki bera hinu sterka, vindbarða íslenska skáldi gott vitni. Auk þess hafa góðir vinir okkar Evu þau Sigfús og Hildur ásamt Ara syni þeirra (nú: Sigføus, Hildemeyer og Are) flutt til Danmerkur og láta vel af og svo mætti áfram telja í svolitla stund. Niðurstaðan er: Ég gæti hugsað mér að læra í Danmörku og hef tekið þennan skemmtiþátt af dagskrá. Jólamatur: Humarsúpa, rjúpur, steiktar og rétt sýnt inni í ofninn, bláberjasósa, waldorfsalat, fyllt epli og brúnaðar kartöflur. Lambakjöt fyrir Kormák ef hann kveikir ekki á rjúpunum. Heimagerður ís og unaðslegt kaffi. Gleðileg jól elsku vinir og bjart og fallegt nýtt ár. December 12 segið halelúja 2X!"Say it loud!" "I´m a Saeco Via Venezia Espresso maker owner and I´m proud!" Lesendur nær og fjær ég tilkynni ykkur að ró og frið hefur verið komið á aftur að heimili Ólafs, Evu & Kormáks. Þessa helgi höfum við verið að ræða espressomál fjölskyldunnar, stefnu og markmið. Við höfum gert talsverðar rannsónkir á lýðnetinu, heimsótt fyrirtæki hér á landi sem annast sölu og hlustað á "ðe vörd on ðe strít". Á laugardag vorum við eiginlega búin að taka ákvörðun og í gær sunnudaginn ellefta desember anno 2005 var fjölskyldan uppklædd og einbeitt á Laugarveginum. Veðrið gott og stemmningin frábær. Fyrst gengum við og náðum okkur í gjöf til móður minnar, litum svo á ísbjörn sem gat hreyft sig og enduðum í Mál og Menningu. Þar versluðum við meira og tókum kaffipásu. Þegar henni var lokið sveif eftirvæntingin yfir vötnum og hefði ekkert slegið hana út nema að hitta Chuck Norris sjálfan á Laugarveginum og kaupa af honum æfingarbekk. Við gengum aftur niðureftir og staðnæmdumst við Kaffitár, fórum inn og gáfum hvort öðru þessa fallegu jólagjöf. Hún er enn óvígð en bíður spennt heima. Svo ég segi nú af öðrum fréttum þá var ég að gæta Danna félaga þeirra Óla & Dagnýjar um helgina. Á laugardaginn kom ég fyrir háttatíma og lékum við okkur saman og spilaði hann með mig eins og ég væri nýliði í barnagæslu. Hann lét mig elta sig útum allt og sagði mér að leggja mig hjá honum víðsvegar um íbúðina, í tjaldinu hans í leikherberginu, í sófann í stofunni og svo allan hringinn á hjónarúminu og meira að segja inní eldhúsi á miðju gólfinu og ég hlýddi að sjálfsögðu möglunarlaust. Svo runnu á mig tvær grímur um hvernig ég væri að standa mig þegar hann ákvað að við ættum svo að leika hunda útúr eldhúsinu, á fjórum fótum takk fyrir. Svo tókum við aðeins meira grín og undirbjuggum okkur svo fyrir háttinn. Allt gékk vel og ég gerði eins og mér var ráðlagt af foreldrunum. Næstum allt. Nú honum gékk ekki vel að sofna og náði mér nokkrum sinnum inn með duddukasti og í lokin náði hann mér alveg til að syngja sig í svefn. Sem er kannski ekki skrýtið þegar barnapían fattar ekki að slökkva á 100 kerta jólaljóshring sem heldur fyrir honum vöku!! Alveg getur maður verið blindur þegar maður er að vanda sig. En allt fór vel að lokum og í gær sat ég aftur yfir honum en þá var hann sofnaður og mitt eina verk var að finna sjónvarpsfjarstýringuna sem Danni hafði farið með í feluleik. Stóðst ég það próf. Jólatengd mál ganga mjög vel og lítið eftir nema ákveða útlit jólakorta og fara með pakka á pósthús. Fjölskyldan er kát og glöð, búin að fara eina ferð norður til Akureyrar og eiga þar frábæran tíma þar sem við ætlum að halda jólin ein hér heima í Reykjavíkinni. Kormákur er þó með blendnar tilfinningar til jólasveinsins, lætur okkur stundum vita að hann vilji alls ekki tala við hann en minnist stundum á að hann hafi gefið sér epli og mandarínu, svolítið svona haltu mér slepptu mér samband. Fyrst við erum að ræða þann stórkostlega strák þá verð ég að segja frá því að hann syngur mikið "í skóginum stóð kofi einn" nema þegar hann vil að við syngjum líka þá segir hann aldrei syngja "kofi" eða álíka, hann segir "veiðimaður skýtur" og gerir viðeigandi látbragð með höndunum. Ég kom ekki nálægt því, þetta er í blóðinu. 2x espresso Óli October 25 VanagangurÍ dag eru komnar 4 rjúpur og verður reynt að bæta stöðuna hverja helgi þar til næst í jólamatinn fyrir sig og sína. Verst er að magister próf í lögfræði, áskrift að öllum héraðssneplum sem birta boð og bönn og aldaþekking á landamerkjum er að verða skilyrði fyrir þessu sporti. Við Óli Helgi fórum um daginn á rjúpu, vorum klukkutíma í Hvalfjörð, klukkutíma í símanum og enduðum á Akrafjalli. Eftir að hafa, spauglaust, talað við 2 lögregluembætti, 2 hreppstjóra (og systur annars þeirra) og einn bæjarritara. Væri einhver til í að veita okkur aðgang að góðu landi? Annars var Eva mín að lýsa yfir áhuga að koma á rjúpu, væri gott að hafa skátann sér við hlið....svo gerir hún killer nesti líka.
Vinnan er að fríka, fækkun starfsmanna, aukning verkefna og nýja kaffivélin hérna að bugast undan álagi. Það er þó alltaf eitt sem klikkar ekki. Það er að nýi bíllinn okkar er MONEY! Unaður að vera á Toyotu...mmm....klikkar alls ekki.
Hið góða: Fjölskyldan, veiði, Benelli M2 og stabilitet.
Bestu kveðjur til lesenda.
October 03 Afmæli erfingjansElsku besti drengurinn minn á afmæli í dag. Hann er 2ja ára ofurmenni. Honum var haldin veisla í gær þar sem ættingjar og vinir komu og heiðruðu hann og færðu honum gjafir, þeim færi ég þeim mínar bestu þakkir. Í dag verður honum aðeins hampað í leikskólanum, fær að sitja í miðju hringsins sem þau sitja í og það verður sungið fyrir hann og svo fær hann að fara með í eldhúsið og sækja ÍS! Vinsæll for life held ég eftir það. Svo er...hlustið nú...TOLLERING!! Gæinn á eftir að fríka af gleði, honum leiðist ekki þegar við glímum og honum er kastað til. Velunnarar og stuðningsmenn er bent á að hafa samband við Smákökuskrýmslið við Sessamístræti ef á að senda honum afmæliskveðju, það myndi gleðja hann töluvert.
Að öðru.
Við kærustuparið úr Bólstaðarhlíðinni fórum á forsýningu á Woyzeck á laugardagskvöldið í Borgarleikhúsinu, flutningur Vesturport, tónlist .. Nick Cave baby.
Sviðsmynd frábær, 8 tonn af vatni, loftfimleikar. Ingvar E er einn af þessum rosalegu átakanlegu leikurum sem krefjast virðingar þegar þeir leika og fá hana möglunarlaust. Björn Hlynur Haraldsson er að fara á lista um eftirlætisleikara. Hann var frábær í Rómeó & Júlíu og er síst síðri núna og hreint ekki slæmur söngvari þegar kemur að Nick Cave lögum. Niðurstaða: Mjög góð sýning, það er, faglega unnin með eindæmum, söngur góður og umgjörð eins og áður var sagt flott. Rústar allavega Kabarett 14x sinnum... Ég er er þó ekki enn alveg að fatta meininguna í verkinu, ég vona að það komi að lokum, stendur reyndar eitthvað um að verkið sé óklárað svo kannski er ég ekki alveg vonlaus.
Fyrir október mæli ég með: lokaátaki í gæs, áframhaldandi önd og starti í rjúpu, taka sjónvarpinu fagnandi og slaka á fyrir jólabrjálæðið.
September 13 Út að borða í hádeginu?Ég vinn í miðbæ Reykjavíkur og snæði oft þar í hádeginu. Nokkrar uppástungur ef ykkur vantar.
Þeir staðir sem ég sæki allajafna:
Kaffibrennslan - Brunch til 12:00. Monster reykingalykt mikill mínus.
Ostabúðin Skólavörðustíg - Hægt að setjast niður og þjónað til borðs, toppmatur á góðu verði.
Café Paris - Stendur fyrir sínu en er ekki að reyna neitt meir.
Mama Tacos - Fyrir gott slömm.
Kaffitár - Ef beyglur eiga að vera á matseðlinum eða ein góð samloka.
Deli - Fínn matur en leiðinlegt að sitja þar.
Grái Kötturinn - Ef þið viljið staðgóðan hádegismat er Trukkurinn eina vitið, 1500 kall samt.
Súfistinn - grípa e-ð lítið í matinn og klára svo á einni Karl Viggo, kókaín í kökuformi.
Ömmukaffi - Sanngjarnt verð og lowkey.
Grænn kostur - Jújú..stundum. Dýrt og allt farið að vera eins á bragðið svo hungrið kemur aftur.
Sægreifinn niður við höfn - Grilluð spjót af frábærum fiski á 600 kall. Snilld.
Staðir sem ég fer sjaldnar á vegna kostnaðar/leiða/matseðils:
Iða
Ráðhús Reykjavíkur
Hér er svo stikla sem telur upp nær alla matsölustaði í Reykjavík. September 01 Slæm tíðindiÞað liggja allir í magakveisu með tilheyrandi. Kormákur er að setja ný met í að vera með slíka pest en læknar segja hann taka nýja og nýja pest. Við létum samt sýni í ræktun frá elsku drengnum. Hann er nú þrátt fyrir þetta hinn brattasti og er hress. Enda er hann nagli og þaulæfður í svona veseni. Býst við að hann verði með ónæmiskerfi sem hlær að flensum í framtíðinni. Norðurferð hefur því verið frestað. Vika í að barnið fari á leikskóla, vonast ég til að þá verði vatnaskil í heilsufarsmálum barnsins. Enn fremur hlakka ég til að hjóla með hann á leikskólann sem er rétt hjá mér á Laufásvegi. Þetta verður 10 mín sprettur hjá okkur feðgum á skólann. Svo tvær mínutur þaðan í vinnu. Lovlí.
Gleðilegan september og nýtt kvótaár. August 30 Veiðitíðindi..eru ósköp bágborin. Líklega er boginn of hátt spenntur eftir gósentíð síðasta árs. Þá þarf bara að trappa sig niður og hafa í huga góða setningu sem Hafþór mágur minn sagði í gærkvöld:"Svona er gæsin, eintóm vonbrigði". Fannst okkur Óla Helga það nokkuð gott og hlógum við. Það verður bara sótt meira, svona hefur þetta verið áður og ekkert að gera nema halda áfram. Sambýliskona mína og ástkona ætlar að fara með mig norður í land næstu helgi til að ég geti veitt. Þetta gerir hún til að gleðja mig að hluta og að hluta til að fara norður og sjá fólkið sitt og sveitina sína. Dásamleg kona. Yndisleg.
Bestu kaffibaunirnar: Espresso Pasero.
Besti morgunmaturinn: Trukkurinn á Gráa Kettinum.
Og það er espresso ekki expresso
August 19 Það er komið að því.Ágætu lesendur.
Gæsavertíðin er að bresta á. Setjið kakó á brúsa, farið í föðurlandið, vaknið um miðja nótt setjið upp tál og hillingar, hlaðið byssurnar og ekki hreyfa ykkur fyrr en það er samdómur að þetta sé færi.
Kveðja
Óli August 08 Haustið er að nálgastFyrir nokkrum dögum fórum við hjónin að sjá Cabarett ásamt Villa & Þórdísi í Íslensku óperunni. Það var hræðilegt, leikmynd slæm og gaf litla stemningu fyrir þessum árum eða andrúmlofti, dans var sérlega dauflegur og illa samhæfður, söngur slakur. Mér hreinlega leiddist á sýningunni og fannst hún ekki óperunni boðin þó svo þetta væri ekkert tengt óperunni sjálfri. Leikhópurinn Á senunni setti verkið upp. Hápunktur sýningarinnar var þegar Óli Helgi vinur minn sendi mér sms um hvernig skotstaðan væri hjá honum fyrir veiðitímabilið. Það verður þó ekki tekið frá Felixi Bergssyni að hann lék vel og var það eina trúanlega í sýningunni. Þetta gengur samt ekki upp né leikrit og ekki heldur sem söngleikur/söngverk.
Mínar tvær uppáhalds uppsetningar.
1. Rómeo & Júlía. Ég dáist að frumleikanum, hæfninni, ákafanum og fagmennskunni.
2. Fegurðardrottningin frá Línakri. Einhver ótrúlegasti leikur allra tíma. Hélt ég myndi rifna í sætinu.
Það er sem betur fer farið að hausta, haustið og vetur er bara fínt. Þá eru allir í vinnu eða skóla og lífsgæði eins og körfubolti í Austurbæjarskóla og veiði kikka inn. Drengurinn okkar fer á leikskóla hérna í Laufásborg eftir sléttan mánuð og þá vonast ég til að við feðgar getum hjólað saman í vinnu og leikskóla þar sem þetta er nánast samliggjandi, splæsi kaffibolla á veðrið ef það leyfir það oftar en ekki í vetur.
Talandi um kaffi þá er þessi síða ótrúleg! Við Eva erum að vera komin á þá ákvörðun að ítölsk vél með stimpli sé málið. Allir sem verða á ferðalögum erlendis og eru mikið fyrir að ferðast með þunga og fyrirferðamikla hluti gefi sig fram.
July 30 BestaHún elskulega æðislega dásamlega Eva mín á afmæli í dag. Sendi ég henni 27 milljón stafræna kossa af því tilefni. |
|
||
|
|